Færslur: 2012 Janúar
30.01.2012 12:21
Ótitlað
Hjónin ákváðu að fara í sólarlandaferð.
Svo illa stóð á að konan
komst ekki fyrr en nokkrum dögum
seinna svo eiginmaðurinn fór á undan.
Þegar hann er kominn á hótelið tekur hann
upp fartölvuna og skrifar
tölvupóst til konu sinnar.
Ekki vildi betur til en svo að hann misritaði
einn staf í netfanginu og lenti pósturinn því
óvart hjá nýorðinni ekkju
er fyrr um daginn hafði jarðað manninn sinn.
Veslings konan var rétt að
jafna sig eftir athöfnina, opnaði tölvupóstinn
sinn til að líta eftirsamúðarkveðjum er
við henni blasti bréfið.
Þegar sonur ekkjunnar
kom heim stuttu seinna, lá hún í yfirliði fyrir
framan tölvuna og stóð
eftirfarandi ritað yfir skjáinn:
Til: Konunnar sem varð
eftir.
Frá: Manninum sem fór á undan.
Efni: Er kominn á
áfangastað
Elskan, er kominn á staðinn heill á húfi.
Er einnig búinn að kynna mér
allar aðstæður og gera allt klárt fyrir
komu þína á morgun. Óska þér
góðrar ferðar og bíð þín með óþreyju.
Ástarkveðjur, þinn ástkæri
eiginmaður.
P.S. Fjandi er heitt hérna niðurfrá
16.01.2012 10:21
Á vegum drottins
Þorvaldur var í árlegri skoðun sinni hjá
lækninum. Öll próf koma vel út og læknirinn spyr Þorvald
"Þetta lítur vel út líkamlega, en hvernig líður þér annars andlega? Ertu
í góðu sambandi við Guð og menn?"
"Ég og Guð erum góðir félagar.
Hann veit að ég sé illa gleraugnalaus, svo að hann hjálpar mér
þegar ég þarf að pissa um miðja nótt. *Púff!* Ljósið kviknar þegar ég pissa, og
svo *Púff!* þega......r ég er búinn, slökknar það aftur."
"Það er ekkert annað," segir læknirinn, "hreint ótrúlegt!"
Eftir skoðunina hringir læknirinn í Hrund konuna hans
Þorvaldar og lýsir áhyggjum af honum:
"Hann er alveg
heilbrigður líkamlega, en hann sagði mér að Guð kveiki og slökkvi ljósið á
nóttunni þegar hann þarf að pissa."
"Gamla fíflið!"
segir konan, "hann hefur verið að míga í ískápinn eina ferðina enn
- 1
